Landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson og leikmaður þýska úrvalsdeildarliðsins Erlangen, glímir enn við erfið hnémeiðsli sem gætu í versta falli bundið enda á feril hans. Viggó viðurkennir að staðan sé alvarleg og telur afar ólíklegt að hann geti tekið þátt í heimsmeistaramótinu sem hefst í janúar. Viggó meiddist í leik með Erlangen í mars síðastliðnum og hefur glímt við afleiðingar meiðslanna síðan. Hann gekkst undir aðgerð þar sem í ljós kom beinmar og brjóskskemmd í hnénu. Eftir langa endurhæfingu sneri hann aftur á völlinn í haust en varð þá fyrir bakslagi sem hefur haldið honum frá keppni. Í samtali við RÚV greinir Viggó frá því að nýlegar myndatökur hafi ekki sýnt fram á nýjar alvarlegar skemmdir en beinmar sé þó meira en áður. Hann finnur enn fyrir verkjum við gang og getur ekki hlaupið. Læknar hafa ráðlagt honum að hvíla sig algjörlega næstu sex til átta vikurnar áður en staðan verður metin að nýju. Heimsmeistaramótið í Þýskalandi hefst eftir um sjö vikur og því eru möguleikar Viggós á þátttöku afar litlir. „Mér finnst mjög hæpið að ég nái að vera með. Ef allt gengur að óskum getur maður kannski komið inn í mótið en eins og staðan er í dag er ég því miður langt frá því að geta spilað handbolta,“ sagði Viggó í samtali við RÚV. Viggó er á 35 manna lista íslenska landsliðsins fyrir heimsmeistaramótið en hann hefur rætt stöðuna við Snorra Stein Guðjónsson landsliðsþjálfara. Báðir gera sér grein fyrir því að líkurnar á þátttöku séu litlar en vilja ekki útiloka möguleikann alveg. Staðan er sérstaklega erfið fyrir Viggó þar sem hann hefur þegar samið við þýska stórliðið Flensburg um að ganga til liðs við félagið næsta sumar. Hann viðurkennir að meiðslin hafi vakið upp áleitnar spurningar um framtíð hans í handboltanum. „Já, auðvitað hugsar maður þegar maður lendir í svona meiðslum og auðvitað er ekkert hægt að gera við brjósk, þannig,“ sagði Viggó við RÚV. Hann segir óvissuna mikla þar sem einstaklingar jafni sig misvel eftir sambærileg meiðsli. Í versta falli gæti hann þurft að sætta sig við að handboltaferillinn sé á enda. Viggó ætlar þó ekki að gefast upp og stefnir á að gera eina tilraun enn til að ná sér að fullu. Ef hvíldin skilar ekki tilætluðum árangri gæti önnur aðgerð orðið næsta skref. Markmið hans er að ná að spila með Flensburg á næstu leiktíð og vera hluti af íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum árið 2028, takist Íslandi að tryggja sér þátttökurétt. „Ég ætla að gefa þessu eina tilraun í viðbót og vonandi jafnar þetta sig núna,“ sagði Viggó. Ljóst er að fjarvera Viggós yrði mikið áfall fyrir íslenska landsliðið enda hefur hann verið mikilvægur hlekkur í liðinu undanfarin ár. Næstu vikur gætu því ráðið miklu um framtíð hans, bæði með landsliðinu og á félagsliðsferlinum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.