Baldur Fritz glímir við meiðsli
Guðmundur Svansson

Baldur Fritz Bjarnason leikmaður sænska meistaraliðsins IFK Kristianstad, glímir við hnémeiðsli sem hafa haldið honum frá keppni í síðustu leikjum. Meiðslin eru nú til frekari rannsóknar en Baldur hefur þegar glímt við meiðslavandræði á sínu fyrsta tímabili í sænsku úrvalsdeildinni.

Baldur var ekki með Kristianstad í síðasta leik liðsins gegn Lugi og missti einnig af stórleiknum gegn toppliði Alingsås í gær. Samkvæmt Kristianstadsbladet fann Baldur fyrst fyrir óþægindum í hnénu í útileik gegn Skövde en verkirnir hafa reynst þrálátari en áður.

„Baldur fann fyrir óþægindum í hnénu í útileiknum gegn Skövde. Hann hefur glímt við svipuð vandamál áður en þá gengu þau yfir á nokkrum dögum. Nú hafa óþægindin hins vegar verið viðvarandi og því erum við að rannsaka málið,“ sagði Thomas Tyszkiewicz, læknir Kristianstad, í samtali við Kristianstadsbladet.

Baldur gekk til liðs við Kristianstad fyrir tímabilið og hefur skorað 33 mörk í fyrstu níu deildarleikjum sínum. Hann hefur þó þurft að glíma við nokkur meiðslavandræði frá því hann kom til Svíþjóðar og er enn óljóst hversu lengi hann verður frá keppni að þessu sinni.

Annar Íslendingur hjá Kristianstad, Andri Erlingsson, hefur einnig verið að glíma við meiðsli. Andri, sem er aðeins 19 ára gamall, tognaði á þumalfingri í síðasta leik og hefur auk þess fundið fyrir óþægindum í báðum hásinum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top