Íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson er þriðji markahæsti leikmaðurinn í sögu Evrópudeildarinnar og forvera hennar, EHF-bikarkeppninnar, samkvæmt samantekt tölfræðimiðilsins DataHandball. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tíu mörk fyrir Kadetten Schaffhausen gegn franska liðinu Chambéry og er þar með kominn með 367 mörk í keppninni á ferlinum. Af þessum 367 mörkum hefur Óðinn skorað 343 fyrir svissneska félagið Kadetten Schaffhausen og 24 fyrir danska félagið GOG. Aðeins tveir leikmenn hafa skorað fleiri mörk en íslenski landsliðsmaðurinn samkvæmt samantektinni en það eru Danirnir Hans Lindberg og Emil Jakobsen. Lindberg trónir á toppnum með 506 mörk en Jakobsen kemur næstur með 404 mörk. Óðinn er því aðeins 37 mörkum á eftir Jakobsen. Annar danskur leikmaður, Michael Damgaard, situr í fjórða sæti með 336 mörk og er því 31 marki á eftir Óðni. Samantekt DataHandball nær allt aftur til tímabilsins 1993/94. Frá tímabilinu 2012/13 eru einungis mörk frá riðlakeppninni og áfram tekin með í útreikningana. Tekið er fram að upplýsingar um markaskorara í einstaka leikjum, sérstaklega fyrir tímabilið 2005/06, liggi ekki fyrir og því gæti heildarmarkafjöldi einhverra leikmanna verið hærri.Tíu markahæstu leikmenn í sögu keppninnar:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.