Ísak Logi í tveggja leikja bann – Bragi Rúnar í þriggja leikja bann
Sævar Jónasson

Aganefnd HSÍ tók átta mál til meðferðar í vikunni og var niðurstaðan sú að tveir leikmenn og tveir starfsmenn voru úrskurðaðir í leikbann. Ísak Logi Einarsson, leikmaður Stjörnunnar, fékk tveggja leikja bann á meðan Bragi Rúnar Axelsson, starfsmaður Harðar, fékk þriggja leikja bann.

Ísak Logi hlaut útilokun með skýrslu vegna sérstaklega hættulegrar aðgerðar í leik Stjörnunnar og Selfoss í Olís-deild karla síðastliðinn föstudag. Aganefnd taldi brotið geta verðskuldað lengra bann en einn leik og gaf Stjörnunni kost á að skila inn athugasemdum áður en endanlegur úrskurður féll í gær.

Tveir starfsmenn Harðar, þeir Bragi Rúnar Axelsson og Pedro Daniel Dos Santos Nunes, hlutu báðir útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik HK 2 og Harðar í Grill 66-deild karla síðastliðinn laugardag. Bragi Rúnar var úrskurðaður í þriggja leikja bann á meðan Pedro fékk eins leiks bann.

Mohamed Khalil Chaouachi, leikmaður Víðis, var einnig úrskurðaður í eins leiks bann eftir að hafa hlotið útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Víðis og Fjölnis í Grill 66-deild karla á laugardaginn.

Daníel Bæring Grétarsson, leikmaður Aftureldingar, Elísa Elíasdóttir, leikmaður Vals, Sunna Katrín Hreinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, og Ólafur Kári Tryggvason, leikmaður Vængja Júpíters, hlutu öll útilokun með skýrslu í leikjum sinna liða en niðurstaða aganefndar var að aðhafast ekki frekar í málum þeirra.

Aganefnd vakti þó athygli á stighækkandi áhrifum útilokana vegna slíkra brota í öllum átta málunum. Leikbönnin fjögur tóku gildi á hádegi í dag, fimmtudaginn 26. nóvember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top