Stjarnan verður án síns besta leikmanns á tímabilinu, Ísaks Loga Einarssonar í næstu tveimur leikjum í Olís-deildinni eftir að hann var úrskurðaður í tveggja leikja bann eftir ljótt brot snemma í leik liðsins gegn Selfossi í síðustu umferð. Ísak Logi missir þar af leiðandi af leik Stjörnunnar gegn FH á heimavelli á laugardaginn og þá missir hann af leiknum gegn Haukum á útivelli í 13.umferðinni. Ísak Logi í tveggja leikja bann – Bragi Rúnar í þriggja leikja bann Það verður skarð fyrir skyldi fyrir Stjörnuna sem situr í 8.sæti deildarinnar með sex stig en FH og Haukar eru í tveimur efstu sætum deildarinnar. Ísak Logi er lang markahæsti leikmaður Stjörnunnar með 102 mörk en Gauti Gunnarsson kemur næstur með 49 mörk. Hér að neðan má sjá brotið í leiknum gegn Selfossi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.