Munu HK koma á óvart í vetur? (Egill Bjarni Friðjónsson)
HK byrjaði tímabilið á eins marks tapi í Vestmannaeyjum í 1.umferð Olís-deildar karla þar sem þeir fengu dæmdan á sig ruðning þegar 3 sekúndur voru eftir og þeir höfðu tækifæri til þess að jafna leikinn. Í nýjasta þætti Handkastsins var rætt um leikinn og þar lofaði Gaupi HK-liðinu. Gaupi hefur hrifist mikið af spilamennsku HK: „Ég sagði það fyrir þessa leiktíð að HK er það lið sem líklega myndi koma mest á óvart en þeir eru markmannslausir og því komu úrslitin í Eyjum mér mikið á óvart hversu nálægt þeir voru að stela stigi.“ Mikil meiðsli hafa herjað á markmenn HK í undirbúningi þeirra fyrir tímabilið en bæði Jovan Kukobat og Brynjar Vignir eru að glíma við meiðsli. „Nái HK að koma sér upp góðri markvörslu í vetur er ég hins vegar sannfærður um að þeir verði í baráttunni um 6 – 7 sætið í Olís deildinni" sagði Gaupi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.