Reiknar með að Matthildur Lilja fari á HM
Sævar Jónasson)

Eins og við höfum greint frá er Andrea Jacobsen leikmaður Blomberg Lippe í kapphlaupi við tímann að ná HM vegna meiðsla sem hún hlaut á æfingu þýska liðsins í síðustu viku.

Það var Handbolti.is sem greindi fyrst frá en Andrea sleit liðband í ökkla á æfingu liðsins á föstudaginn í síðustu viku, daginn fyrir leik liðsins gegn Val í forkeppni Evrópudeildarinnar.

Arnar Pétursson þjálfari kvennalandsliðs Íslands sagði í samtali við Handbolta.is gera ráð fyrir því að velja 17. leikmann inn í hópinn vegna óvissunar með þátttöku Andreu á heimsmeistaramótinu.

Athygli vakti að Grétar Áki Andersen þjálfari ÍR sagði í viðtali við Handkastið eftir sigur liðsins gegn toppliði Vals í gær að hann gerði ráð fyrir því að tveir leikmenn ÍR væru á leið á HM. Katrín Tinna Jensdóttir var valin í 16 manna leikmannahóp Íslands fyrir HM en miðað við orð Grétars Áka gerir hann ráð fyrir því að Matthildur Lilja Jónssdóttir verði kölluð inn í íslenska hópinn vegna meiðsla Andreu.

,,Við missum tvo leikmenn í landsliðsfrí-inu, reikna ég með í Matthildi og Katrínu. Þannig þá getum við einbeitt okkur að vinna í hinum," sagði Grétar Áki í viðtali við Handkastið í gær.

Hægt er að sjá viðtalið við Grétar Áka hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top