Magdeburg enn ósigraðir og önnur úrslit kvöldsins í Meistaradeildinni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ómar Ingi skoraði 4 mörk í sigri Magdeburg í kvöld (Andreas Gora / AFP)

Fjórir leikir fóru fram í áttundu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar þar sem 5 Íslendingar voru í eldlínunni.

Magdeburg unnu 8 marka sigur á HC Zagreb í Króatíu og er liðið því enn ósigrað í keppninni. Ómar Ingi Magnússon skoraði 4 mörk, Gísli Þorgeir Kristjánsson 2 og Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark.

Álaborg unnu nokkuð óvæntan sigur á Industria Kielce 34-27.

Veszprém fóru aftur illa með Benedikt Gunnar Óskarsson og félaga í Kolstad 42-34 eftir að hafa verið 20-18 yfir í hálfleik. Bjarki Már lék ekki með Vesprém í dag og Benedikt Gunnar Óskarsson komst ekki á blað þrátt fyrir tvær tilraunir.

Barca unnu þriggja marka sigur á PSG 27-30. Viktor Gísli Hallgrímsson fékk lítið að spreyta sig í marki Börsunga í dag en honum tókst ekki að verja neitt þeirra þriggja skota sem hann fékk á sig.

Úrslit kvöldsins og staðan í riðlunum:
A riðill:
Álaborg - Industria Kielce 34-27
Veszprém - Kolstad 42-34

Standin
Standings provided by Sofascore
gs provided by Sofascore

B riðill:
HC Zagreb - Magdeburg 35-43
PSG - Barca 27-30

Standings provided by Sofascore

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top