Vinstri hornamaðurinn í liði KA/Þórs sem eru nýliðar í Olís-deild kvenna, Unnur Ómarsdóttir leikur ekki meira með liðinu á þessu tímabili. Unnur gengur með barn undir belti. Unnur lék 14 leiki með KA/Þór í Olís-deild kvenna á þessu tímabili og skoraði 25 mörk en KA/Þór er í 6.sæti deildarinnar með 15 stig og hefur stigasöfnun liðsins komið mörgum á óvart í vetur en þá fór liðið einnig alla leið í undanúrslit Powerade-bikarsins en töpuðu gegn bikarmeisturum Vals. Unnur hefur ekkert leikið með KA/Þór í undanförnum leikjum en hún staðfesti í samtali við Handkastið að ástæðan væri einföld. Hún ætti von á sínu þriðja barni í september. Unnur sem verður 36 ára á þessu ári vill ekki útiloka neitt varðandi endurkomu aftur á völlinn en viðurkennir að hún sé kannski ekki að gera ráð fyrir því. ,,Hver veit hvað maður vill gera seinna," sagði Unnur í samtali við Handkastið. Unnur er annar leikmaður Olís-deildar kvenna sem hefur spilað sinn síðasta leik á tímabilinu vegna óléttu á stuttum tíma en í gær var tilkynnt að Þórey Anna Ásgeirsdóttir leikmaður Vals væri ólétt og myndi ekki leika meira með Val né íslenska landsliðinu á þessu tímabili.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.