Í byrjun nóvember sömdu dönsku meistarnir í Álaborg við hollenska hægri hornamanninn, Alec Smit eftir að í ljós kom að Patrick Wiesmach yrði frá keppni út tímabilið vegna axlarmeiðsla. Alec Smit, sem er 26 ára gamall, hefur mikla reynslu bæði sem leikmaður HSG Nordhorn-Lingen, Sønderjyske og þá lék hann með Pfadi Winterthur í Sviss á síðasta tímabili. Hann var hinsvegar búinn að vera án félags og búsettur í Viborg áður en hann samdi við Álaborg. Nú er hinsvegar ljóst að Alec Smit leikur ekki meira með Álaborg á tímabilinu en hann sleit krossband á dögunum. Álaborg er því aftur komnir í vandræði í hægri hornamanna stöðunni fyrir síðustu vikur og mánuði tímabilsins en liðið er í baráttunni á öllum vígstöðvum bæði heima fyrir og í Meistaradeildinni en liðið hefur nú þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrir hjá Álaborg er Norðmaðurinn, Kristian Bjørnsen í hægra horninu en Alec Smit hafði haft það hlutverk að leysa hann af. Alec Smit á að baki 62 landsleiki fyrir Holland. Álaborg fær Fuchse Berlín í heimsókn í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar á morgun.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.