Sigurður Jefferson (Sævar Jónasson)
Mark Ortega landsliðsþjálfari Bandaríkjanna hefur valið 20 manna landsliðshóp sinn fyrir æfingaviku sem framundan er í Danmörku í byrjun janúar. Ortega var ráðinn þjálfari bandaríska landsliðsins í sumar og tók hann við liðinu af Robert Hedin sem hætti með liðið fyrr á þessu ári. Sigurður Jefferson Guarino leikmaður HK er í hópnum en hann lék sína fyrstu landsleiki fyrir Bandaríkin í mars á þessu ári. Bandaríska landsliðið kemur saman 5. janúar og æfir til 14. janúar. Æfingarnar eru í samvinnu við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE. Stærstu fréttirnar eru hinsvegar þær að fyrrum landsliðsmaður Svíþjóðar, Alfred Jönsson er í hópnum en hann lék siðast með sænska landsliðinu á HM 2021. Hann er í dag leikmaður Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur aldrei áður verið valinn í bandaríska landsliðið. Á dögunum var það gefið út að bandaríska landsliðið mun þátt í æfingamóti í Danmörku í mars ásamt Danmörku, Noregi og Hollandi dagana 19. - 22. mars. Mótið fer fram í Kaupamannahöfn. Bandaríska landsliðið undirbýr sig af miklu afli fyrir Ólympíuleikana í Los Angeles sumarið 2028. Hér að neðan má sjá bandaríska hópinn sem valinn var:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.