Ómar Ingi Magnússon ((Kristinn Steinn Traustason)
Íslenska landsliðið í handbolta hefur leik á Evrópumótinu í handbolta þann 16.janúar næstkomandi þegar liðið mætir Ítölum í Kristianstad í Svíþjóð. Veðbankinn Coolbet býður upp á ýmsa markaði til að gera leikinn skemmtilegri í kringum mótið og einn þeirra er hver verður markahæstur Íslendinga á mótinu. Ómar Ingi Magnússon er talinn líklegastur að vera markahæstur á stuðlinum 1.85 en hann mun eflaust byrja á vítapunktinum. Félagi hans í hægri skyttunni Viggó Kristjánsson er talinn næst líklegastur til að vera markahæstur á stuðlinum 4 en hann er ansi líklegur til að taka við vítapunktinum ef Ómari Inga bregst bogalistin. Í þriðja sæti er Óðinn Þór Ríkharðsson á stuðlinum 7.5 en hann mun sitja um hægra hornið nánast einn þar sem Sigvaldi Guðjónsson var ekki valinn í lokahópinn að þessu sinni. Það er því óhætt að segja að líkurnar á því að örvhentur leikmaður verði markahæstur hjá Íslendingum á þessu móti.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.