Blær Hinriksson gekk í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Leipzig fyrir tímabilið og gerði eins árs samning við félagið. Blær gekk í raðir Leipzig eftir dvöl sína í Mosfellsbænum hjá Aftureldingu. Blær segir að það sé enn óljóst hvað tekur við hjá honum eftir tímabilið en Leipzig er á botni þýsku deildarinnar með 10 stig eftir 27 leiki. ,,Ég hef nokkra valmöguleika sem ég er að meta. Þetta ætti að skýrast fljótlega,” sagði Blær í samtali við Handkastið og staðfesti að einn af möguleikunum væri að vera áfram hjá Leipzig á næsta tímabili. Sjö umferðir eru eftir af tímabilinu hjá Leipzig sem þurfa heldur betur á stigum að halda í síðustu umferðunum til að bjarga sæti sínu í Bundesligunni. Liðið mætir Minden í lokaumferðinni en Minden er með tveimur stigum meira en Leipzig í 16.sætinu. HSG Wetzlar er í 17.sætinu með 11 stig en tvö neðstu lið deildarinnar falla í þýsku B-deildina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.