


Tímabilinu er lokið hjá nýliðum KA/Þórs í Olís-deild kvenna sem enduðu í 6.sæti deildarinnar og féllu úr leik eftir 2-0 tap gegn Haukum í 6-liða úrslitum úrslitakeppninnar. KA/Þór komst einnig í Final 4 helgina í Powerade-bikarnum en tapaði gegn bikarmeisturum Vals í undanúrslitum. Jónatan Magnússon stýrði liðinu á sínu öðru ári en liðið vann Grill66-deildina undir hans stjórn í fyrra. Hann segir í samtali við Handkastið vera ánægður með tímabilið á heildina litið. ,,Við settum okkur nokkur markmið fyrir tímabilið. Okkar helsta markmið var að tryggja sætið í deildinni og þar með vera með í úrslitakeppnninni," sagði Jónatan og bendir á að það sé skrítin staðreynd að með því að tryggja sér sæti í deildinni þá ertu um leið komin í úrslitakeppnina. ,,Við vorum sannfærð fyrir tímabil að það væri eitthvað sem við áttum að geta náð enda fannst okkur við vera með nógu góðan hóp í það. Það tókst en við hefðum viljað enda mótið betur og ná 5. sætinu sem var ekki svo langt í fyrir okkur. Okkur tókst einnig að komast í Final 4 sem var eitthvað sem við vorum búin að setja okkur sem markmið." ,,Í heildina vorum við mjög ánægð með tímabilið. Eins og allir vita þá hefur það reynst nýliðum erfitt að halda sæti sínu svo það var mjög gott," bætir Jónatan við sem er vatn á myllu þeirra sem hafa kallað eftir því að fjölga liðum í Olís-deild kvenna úr átta liðum í tíu lið til að auka líkurnar á að nýliðar í Olís-deild kvenna gæti fest rætur í deild þeirra bestu. ,,Varnarlega heilt yfir vorum við mjög góð, en sóknarlega var allt of miklar sveiflur. Mér fannst hinsvegar miklu meira gott hafa verið í gangi hjá okkur heldur en slæmt og við gáfum öllum liðunum alvöru leiki. Inn á milli komu þó slæm töp og það er svona það helsta sem ég vonast til að við bætum á milli tímabila. Við eins og aðrir vorum að glíma við meiðsli og það hafði eflaust eitthvað að segja um að það var aðeins of miklar sveiflur í okkar leikjum." KA/Þór hóf tímabilið vel og vann fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu. Jónatan segir það enga spurningu að það hafi gefið liðinu aukið sjálfstraust komandi inn í deildina sem nýliðar. ,,Ég var mjög ánægður með byrjunina og má segja að það hafi staðfest þá trú sem ég hafði á stelpunum fyrir tímabilið. Við runnum eðilega aðeins blint í sjóinn um hvar við stæðum en sex stig í byrjun gerði mikið fyrir okkur." Jónatan segir að það verði miklar breytingar á liðinu fyrir næstu leiktíð. ,,Erlendu leikmennirnar okkar verða ekki hjá okkur áfram og við erum að skoða markaðinn núna," sagði Jónatan og bætti við að það mætti búast við tilkynningum frá KA/Þór varðandi styrkingar á allra næstu dögum. Í gær tilkynnti KA/Þór að markvörðurinn Ingibjörg Hauksdóttir hafi gengið í raðir félagsins. Trude Håkonsen samdi á dögunum við Stjörnuna og þá er ljóst að Susanne Pettersen og markvörðurinn Bernadett Leiner á förum frá liðinu. ,,Við erum náttúrlega búin að fá Aldísi Ástu aftur heim sem mun verða gríðarlega mikilvæg fyrir okkur enda einn besti leikmaðurinn á landinu eins mun hún mun gera aðra leikmenn betri." ,,En við þurfum og ætlum að styrkja liðið okkar og vil ég nota tækifærið hér til þess að hvetja íslenska leikmenn sem vilja komast í norðlenska loftið að hafa samband. Það er alltaf pláss fyrir réttu leikmennina hjá okkur og ég lofa að það er geggjað að búa á Akureyri. Við höfum síðustu ár reynt að sækja leikmenn frá höfuðborginni en það er eins og það sé eitthvað sem bara þær allra hörðustu þora og geta svo ég auglýsi hér með eftir þeim." Mikil umræða hefur verið innan handboltahreyfingarinnar að breyta mótafyrirkomulaginu í meistaraflokki kvenna fyrir næstu leiktíð og fjölga liðum í Olís-deild kvenna í 10 lið úr 8 liðum. Við spurðum Jónatan að lokum hvar hann standi í þeim hugmyndum. ,,Varðandi mótafyrirkomulagið þá hef ég áður sagt að mér finnst eðlilegast að HSÍ og þau sem þar starfa eigi að taka ákvörðun um hvers konar mótafyrirkomulag verður. Hvort það sé 10 liða deild eða eitthvað annað hef ég eiginlega ekki skoðun á. Það hefur verið ýmislegt reynt í gegnum tíðina. Eflaust þarf að skoða þetta út frá mörgum hliðum og ég mér finnst eðlilegast að slíkar ákvarðanir taki þau sem hafi allar forsendur fyrir framan sig. Við þjálfarnir vinnum svo eftir því," sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA/Þórs að lokum í samtali við Handkastið.Hefur reynst nýliðum erfitt að halda sæti sínu
Það verða töluverðar breytingar á liðinu
Hefur ekki skoðun á mótafyrirkomulaginu

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.