
Dregið verður í riðla fyrir Evrópumót kvenna í handbolta sem fram fer í desember síðar á árinu í dag, klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Drátturinn fer fram í Katowice í Póllandi en Póllandi er ein af fimm þjóðum sem halda Evrópumótið í ár. Hinar þjóðirnar eru Rúmenía, Tékkland, Slóvakía og Tyrkland og verður leikið á sex mismunandi keppnisstöðum í riðlakeppninni. Alls taka 24 þjóðir þátt á mótinu og verður þeim raðað í sex riðla með fjórum liðum í hverjum ljóst er að Ísland verður í fjórða styrkleikaflokki þegar dregið verður og má því búast við erfiðum andstæðingum í riðlakeppninni. Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sér sæti í milliriðlum sem fara fram í Rúmeníu og Póllandi. Að lokum fer úrslitahelgin fram í Katowice dagana 18. og 20. desember 2026. Styrkleikaflokkarnir eru eftirfarandi: Búið er að raða sex þjóðum sem eru feitletruð hér að ofan niður í sex riðla: Ungverjaland leikur í riðli A í Oradea (Rúmenía) Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á ruv.is, auk þess sem EHF býður upp á streymi fyrir áhugasama.
1. styrkleikaflokkur: Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Frakkland, Svíþjóð, Holland
2. styrkleikaflokkur: Þýskaland, Svartfjallaland, Pólland, Rúmenía, Spánn, Tékkland
3. styrkleikaflokkur: Tyrkland, Slóvakía, Slóvenía, Sviss, Austurríki, Færeyjar
4. styrkleikaflokkur: Króatía, Serbía, Ísland, Norður-Makedónía, Úkraína, Grikkland
Rúmenía leikur í riðli B í Cluj-Napoca (Rúmenía)
Tyrkland leikur í riðli C í Antalya (Tyrkland)
Tékkland leikur í riðli D í Brno (Tékkland)
Pólland leikur í riðli E í Katowice (Pólland)
Slóvakía leikur í riðli F í Bratislava (Slóvakía)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.