Íslenska kvennalandsliðið hefur leik á Evrópumótinu 3. desember og mætir þá Slóveníu í fyrsta leik riðlakeppninnar. Ísland leikur í A-riðli sem fer fram í Oradea í vesturhluta Rúmeníu, skammt frá landamærum Ungverjalands. Í riðlinum eru einnig Ungverjar, sem unnu til bronsverðlauna á síðasta EM, og Svartfellingar, sem Ísland mætti í undankeppninni sem lauk nýverið. Samkvæmt bráðabirgðadagskrá verður leikjaröð Íslands þannig að liðið mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember. Miðasala á mótið er þegar hafin og búast má við miklum áhuga, ekki síst vegna þátttöku Ungverja í riðlinum en stutt er að fara frá Ungverjalandi yfir til Oradea. Dregið var í riðla í Katowice í Póllandi á fimmtudaginn og var Ísland í neðsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn. Þrátt fyrir það bíður liðsins spennandi verkefni, en þetta verður fjórða stórmótið í röð sem íslenska liðið tekur þátt í.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.