Íslenska kvennalandsliðið tryggði sér á dögunum á sitt fjórða stórmót í röð eftir glæsilegan sigur á Portúgal í lokaleik undankeppninnar. Mótið fer fram dagana 3. til 20. desember og leikur í A-riðli ásamt Ungverjalandi, Svartfjallalandi og Slóveníu. Leikið verður í Oradea í Rúmeníu. Dregið var í riðlakeppni mótsins í síðustu viu. Miðasala á Evrópumótið er nú hafin og geta íslenskir stuðningsmenn þegar tryggt sér sæti á leikjum íslenska landsliðsins á mótinu. ,,Mikill áhugi er jafnan á stórmótum sem þessum og því ljóst að mikilvægt er að bregðast snemma við," segir í tilkynningunni frá HSÍ. Alls taka 24 þjóðir þátt í mótinu og komast tvö efstu lið hvers riðils áfram í milliriðla. Ísland með bronsliði Ungverja í riðli - Sjáðu riðla mótsins hér.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.