U16 ára landslið kvenna valið fyrir Opna Evrópumótið
Kristinn Steinn Traustason

Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson hafa tilkynnt lokahóp U16 ára landsliðs kvenna sem mun keppa á Opna Evrópumótinu í Gautaborg dagana 29. júní til 3. júlí.

Ísland sem er eitt af 20 liðum sem taka þátt í mótinu er í riðli með Ungverjalandi, Króatíu, Tékklandi og Litáen.

Tvö efstu lið hvers riðils tryggja sér sæti í átta liða úrslitum, en hin liðin spila um sæti níu til tuttugu. Þá fá tvö efstu lið mótsins þátttökurétt á nýju heimsmeistaramóti U16, sem haldið verður síðar á árinu í fyrsta sinn.

Alls skipa 16 leikmenn landsliðshópinn, auk fjögurra varamanna.

Landsliðshópurinn:

  • Anja Gyða Vilhelmsen, Valur
  • Bjartey Hanna Gísladóttir, Fram
  • Elma Kolbrún Bjarnadóttir, FH
  • Emilía Guðný Magnúsdóttir, HK
  • Freydís Ragna Kristjánsdóttir, HK
  • Helga Jenný Vigfúsdóttir, HK
  • Hrefna Dís Valgeirsdóttir, Haukar
  • Katrín Ásta Jóhannsdóttir, ÍR
  • Kristín Einarsdóttir, HK
  • Matthildur Helga Ólafsdóttir, Valur
  • Sara Sigurvinsdóttir, Valur
  • Sara Sveinsdóttir, Valur
  • Soffia Helen Sölvadóttir, Grótta
  • Tanja Harðardóttir, ÍBV
  • Tinna Dröfn Hauksdóttir, HK
  • Þórhildur Káradóttir, Valur

Varamenn:

  • Anna Bára Hjaltadóttir, Fram
  • Brynja Sif Gísladóttir, Fram
  • Freyja Sveinbjörnsdóttir, Fram
  • Hjördís Gauja Kjartansdóttir, Selfoss

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top