Álaborg býður upp á einstakt tækifæri fyrir stuðningsmenn
HENNING BAGGER / Ritzau Scanpix via AFP)

Þrátt fyrir að úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Köln hafi ekki farið eins og Álaborg vonaðist eftir gefst stuðningsmönnum nú kostur á að eignast sérstaka minjagripi frá tímabilinu.

Danska félagið hefur sett notaðar keppnistreyjur leikmanna sinna úr Final4 helgi Meistaradeildarinnar á uppboð. Þar geta áhugasamir boðið í treyjur sem voru notaðar á stærsta sviði evrópsks félagsliðahandbolta.

Á uppboðinu eru bæði heimatreyjur, útitreyjur og markmannstreyjur frá öllum leikmönnum aðalliðsins. Allar treyjurnar eru jafnframt áritaðar af þeim leikmanni sem notaði þær á tímabilinu.

Aalborg segir á heimasíðu sinni að um sé að ræða einstakt tækifæri fyrir stuðningsmenn og safnara til að eignast minjagripi frá tímabili þar sem félagið var á ný meðal sterkustu handboltaliða Evrópu.

Uppboðið er þegar hafið og geta áhugasamir lagt inn tilboð fram til 18. júní klukkan 20:00 í gegnum opinbera uppboðssíðu félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top