Jovan ráðinn markmannsþjálfari HK

HK hefur samið við Jovan Kukobat um að taka að sér markmannsþjálfun hjá félaginu.

Jovan hefur leikið með Akureyri, KA, Þór Akureyri, Víking, Aftureldingu og HK hér á landi. Auk þess hefur hann verið að sinna markmannsþjálfun yngri flokka hjá sumum félaga sem hann hefur leikið með.

Jovan hefur jafnframt komið að verkefnum á vegum HSÍ. Í sumar var Jovan hluti af þjálfarateymi íslenska U20-landsliðsins á heimsmeistaramótinu.

"Það er okkur mikið ánægjuefni að halda Jovan innan raða HK og fá hans reynslu, þekkingu og metnað áfram inn í starfið" segir í tilkynningu frá HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top