Færeyski línumaðurinn Agatha Kjærbæk Djuurhus gekk á dögunum til liðs við KA/Þór fyrir komandi átök í kvennaboltanum. Djuurhus kemur til Akureyrar frá Færeyjum og segir að félagaskiptin hafi átt sér nokkuð óvæntan aðdraganda. Það var eftir leik í færeysku deildinni í febrúar sem Nicholas Satchwell, þjálfari Neistans og maður sem þekkir vel til á Akureyri, kom að máli við hana. „Þetta var eiginlega mjög tilviljunarkennt. Við vorum nýbúnar að spila leik í færeysku deildinni í febrúar þegar Nicholas Satchwell, aðalþjálfari Neistans, kom til mín og sagði mér að KA/Þór hefði áhuga á mér.“ Eftir að hafa skoðað möguleikann betur komst Djuurhus að þeirri niðurstöðu að flutningurinn til Íslands gæti hentað henni vel þar sem hún hafði áhuga að spila á hærra getustigi en í Færeyjum og bæta sig sem leikmaður. Satchwell var ekki sá eini sem Djuurhus ræddi við áður en ákvörðunin var tekin. Færeyska handknattleikssambandið, HSF, kom einnig að ferlinu og hún leitaði ráða hjá bæði þjálfurum og leikmönnum. „Nicholas hjálpaði mér auðvitað mikið en HSF átti líka stóran þátt í þessum félagaskiptum. Ég ræddi við nokkra þjálfara og leikmenn og einnig leikmenn sem spila nú þegar í íslensku deildinni. Ég fékk því mikla hjálp.“ Hún viðurkennir að þekkingin á íslensku deildinni hafi ekki verið mikil áður en KA/Þór sýndi henni áhuga en það hafi breyst hratt. Ísland sjálft er hins vegar langt frá því að vera framandi í augum Djuurhus. Hún telur löndin tvö eiga margt sameiginlegt og segir það auðvelda flutninginn. „Ísland er líklega það land sem líkist Færeyjum mest. Menningin og fólkið eru mjög lík og það er mjög notalegt. Það gerir það að verkum að manni líður svolítið eins og heima hjá sér.“ Djuurhus leikur á línunni en segir sig frábrugðna mörgum öðrum línumönnum þegar kemur að líkamsbyggingu. Hún reynir þess í stað að nýta hreyfanleika og hraða í sínum leik. „Ég er línumaður en er hvorki sérstaklega há né þung miðað við marga aðra í þeirri stöðu. Leikstíllinn minn byggist því mikið á því að vera á hreyfingu og skapa pláss þannig. Ég elska líka að taka hraða miðju þannig að ég myndi líklega lýsa mínum leik sem hröðum.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.