
Gummersbach byrjaði nýtt tímabil í þýsku úrvalsdeildinni með naumu 31-33 tapi gegn ríkjandi meisturum Magdeburg á heimavelli um helgina. Gummersbach lenti snemma fimm mörkum undir og var 14-18 undir í hálfleik. Lið Guðjóns Vals Sigurðssonar gafst þó ekki upp og vann sig hægt og bítandi inn í leikinn í síðari hálfleik. Teitur Örn Einarsson var ekki með Gummersbach í leiknum en Elliði Snær Viðarsson fór mikinn bæði varnar og sóknarlega. „Við byrjuðum ekki vel í dag. Magdeburg var töluvert betra og við náðum ekki að hafa stjórn á hlutunum í vörninni. Við gerðum líka of mörg mistök og lélegar sendingar í sókninni,“ sagði Gúðjón Valur eftir leikinn. Þrátt fyrir tapið var íslenski þjálfarinn sáttur við viðbrögð sinna manna. „Við lögðum allt í þetta. Þess vegna get ég ekki verið ósáttur. Ég get ekkert sett út á baráttuna og viljann hjá mínu liði.“ Miro Schluroff fór mikinn hjá Gummersbach og skoraði 11 mörk, þar af stóran hluta í síðari hálfleik. Hann viðurkenndi að það hefðu verið smáatriðin sem skildu liðin að. „Þetta eru þessi litlu atriði. Við gerum of mörg mistök í fyrri hálfleik og tökum síðan eitt og eitt skot sem við hefðum kannski ekki átt að taka. Þetta eru hlutirnir sem Magdeburg gerir einfaldlega ekki.“ Guðjón Valur segir hins vegar að hann hafi verið ánægður með það hvernig lið hans kom til baka í leiknum. „Við sýndum að við getum komið til baka og barist við lið eins og Magdeburg þrátt fyrir að hafa byrjað leikinn eins og við byrjuðum hann.“ Ekki liggur enn fyrir hvort Teitur eða Alex Dujshebaev verði klárir í næsta leik liðsins gegn Rhein-Neckar Löwen á morgun. Gummersbach mætir síðan MT Melsungen á heimavelli á laugardag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.