Fimman: Þeir sem liðin mega alls ekki missa
Egill Bjarni Friðjónsson

Fimman er liður á Handkastinu sem hluti af upphitun fyrir keppnistímabilið 2026/2027 sem hefst í byrjun september.

Í Fimmunni tekur Handkastið saman lista af hinu og þessu sem Handkastið telur áhugavert og í þessum lista tekur Handkastið saman lista af leikmönnum og þjálfurum sem verða undir pressu í vetur af ýmsum ástæðum.

Hér að neðan má sjá Fimmuna af þeim sem félögin mega alls ekki missa:

  1. Jón Þórarinn Þorsteinsson (FH)
    Eftir að Daníel Freyr Andrésson annar af markvörðum FH sleit hásin á dögunum er nokkuð ljóst að FH-ingar mega alls ekki við því að missa Jón Þórarin í einhver meiðsli. Það er langt og strangt tímabil framundan hjá FH sem leika sem leiki í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrir áramót auk leikjanna hér heima.
  2. Freyr Aronsson (Haukar)
    Þrátt fyrir ungan aldur tók Freyr Aronsson yfir leik Hauka í fyrra og bar liðið oft á tíðum á herðum sér. Var gríðarlega mikilvægur bæði varnar og sóknarlega og leikmaður eins og Hergeir Grímsson var kominn í agnarsmátt hlutverk hjá Haukum. Ætli Haukar sér stóra hluti í vetur þá þarf Freyr að haldast heill heilsu en hann hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli hér og þar.
  3. Björgvin Páll Gústavsson (Valur)
    Líkt og FH-ingar, þá eru Valur á leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrir áramót og því mikil leikjaálag. Valsmenn eru með Jens Sigurðarson sem varamarkmann og það hlýtur að vera að nú fái hann aukið hlutverk í liði Vals. Það þýðir samt ekki að Valsmenn mega alls ekkert við því að missa Björgvin Pál út í meiðsli, enda hefur hann flutt lögheimilið sitt á milli stanga Vals undanfarin ár og enginn annar markvörður hefur verið velkominn þangað.
  4. Bjarni Ófeigur Valdimarsson (KA)
    Var allt í öllu í leik KA á síðustu leiktíð er liðið kom mörgum á óvart og komst liðið alla leið í undanúrslit Íslandsmótsins og bikarkeppninnar. Bjarni Ófeigur glímdi þó við meiðsli seinni part tímabils og það hafði áhrif á hans spilamennsku og ekki síst KA-liðsins. Bjarni var lang besti leikmaður síðasta tímabils áður en hann meiddist og KA-menn þurfa á honum að halda í vetur ætli liðið sér að gera tilkall að einhverju stóru.
  5. Harri Halldórsson (Afturelding)
    Mosfellingar eru þunnskipaður í útlínunni og hafa misst bæði Sveinur Ólafsson og Ágúst Inga Óskarsson en á sama tíma fengið Hans Jörgen Ólafsson. Harri Halldórsson var einn af ljósum punktunum í liði Aftureldingar á síðasta tímabili og var algjör lykilmaður í mörgum leikjum. Afturelding gætu lent í vandræðum með að fylla skarð Harra detti hann út vegna meiðsla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top