Máté Lékai, einn þekktasti handboltamaður Ungverjalands á síðari árum, hefur gefið það út að komandi tímabil með Ferencváros verði að öllum líkindum hans síðasta á ferlinum. Lékai er 38 ára gamall og hann á að baki 198 landsleiki fyrir Ungverjaland og er nú að hefja sitt 30. tímabil sem handboltamaður. Ákvörðunin um að halda áfram eitt ár í viðbót var þó ekki auðveld. Lékai segist hafa hugsað mikið um framtíðina í sumar en hafi að lokum komist að þeirri niðurstöðu að hann vildi ljúka ferlinum á sínum eigin forsendum. „Eftir nákvæmlega þrjátíu ár í handbolta verður þetta að öllum líkindum síðasta tímabilið mitt á ferlinum. Mér finnst tíminn vera kominn og líkaminn segir mér það sama. Ég hugsaði mikið um framtíðina í sumar en ég vildi ekki hætta með þeim hætti. Í mínum huga var planið skýrt: Ég ætla að klára þetta tímabil og ljúka þessu langa ferðalagi á mínum eigin forsendum,“ sagði Lékai á heimasíðu Ferencváros. Ferencváros hefur leik í ungversku úrvalsdeildinni á föstudaginn. Lékai segist ætla njóta síðasta tímabilsins og hjálpa liðinu eftir bestu getu áður en hann kveður handboltann sem leikmaður. Lékai hefur átt afar farsælan feril. Hann hóf feril sinn ungur að árum og hefur leikið með meðal annars Veszprém, Szeged og Ferencváros auk þess að hafa spilað um árabil með ungverska landsliðinu. Á sínum tíma með ungverska landsliðinu lék hann íslenska landsliðið grátt.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.