Þrír leikmenn úr Olís-deildinni í landsliðshópi Færeyja
Sævar Jónasson

Þrír leikmenn sem leika í Olís-deild kvenna á Íslandi eru í 23 manna landsliðshópi Færeyja sem valinn hefur verið fyrir verkefni liðsins í september.

Tveir þeirra gengu í raðir KA/Þórs í sumar, þær Joan Rúnadóttir Johannesen og Agatha Kjærbæk Djurhuus, en þær verða báðar á meðal leikmanna færeyska landsliðsins sem kemur saman dagana 21.–29. september.

Þriðji leikmaðurinn er Inga Maria Roysdóttir, leikmaður Stjörnunnar, sem lék með Garðabæjarliðinu í Olís-deildinni á síðustu leiktíð.

Alls eru því þrír leikmenn úr íslensku deildinni í hópnum en Færeyingar undirbúa sig nú af krafti fyrir sitt fyrsta Evrópumót í sögunni. Landsliðsþjálfararnir Claus Leth Mogensen og Simon Olsen völdu 23 leikmenn í hópinn.

Natasja Hammer, liðsfélagi Ingu Mariu hjá Stjörnunni, er hins vegar ekki í hópnum að þessu sinni. Hún er barnshafandi og verður því ekki með í verkefninu. Natasja Hammer var í færeyska landsliðshópnum sem tryggði sér á EM.

Eftir september verkefnið bíða Færeyinga fleiri æfingaleikir áður en liðið heldur á sitt fyrsta Evrópumót.

Í október fara þær til Austurríkis þar sem þær mæta heimakonum í tveimur æfingaleikjum, þann 22. og 24. október. Í nóvember bíða svo tveir afar krefjandi leikir í Noregi. Þar mæta Færeyingar fyrst Noregi fimmtudaginn 26. nóvember og síðan Danmörku laugardaginn 28. nóvember.

Fyrsti leikur Færeyja á EM verður síðan laugardaginn 5. desember gegn Úkraínu.

Landsliðshópur Færeyja

Markverðir

  • Rakul Wardum – Skanderborg Håndbold (Danmörk)
  • Annika Fríðheim Petersen – Gniezno (Pólland)
  • Gylta Djurhuus á Neystabø – Skuru IK (Svíþjóð)

Bakkar

  • Silja Geirsdóttir Eystberg – Ajax København (Danmörk)
  • Jana Mittún – Viborg HK (Danmörk)
  • Maria Pálsdóttir Nólsoy – København Håndbold (Danmörk)
  • Marita Mortensen – Nykøbing Falster Håndboldklub (Danmörk)
  • Lív Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)
  • Súna Krossteig Hansen – Buducnost (Svartfjallaland)
  • Fríða Nolsøe Olsen – BK Ydun (Danmörk)
  • Lukka Arge – H71
  • Ró Reginsdóttir – Neistin
  • Rakul Borgarlíð Joensen – VÍF

Vængir

  • Brynhild Pálsdóttir – BK Ydun (Danmörk)
  • Inga Maria Roysdóttir – Stjarnan (Ísland)
  • Joan Rúnadóttir Johannesen – KA/Þór (Ísland)
  • Sára Berg á Lag – H71
  • Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe – H71
  • Rannvá Olsen – Ejstrup/Hærvejen (Danmörk)
  • Christina Turiðardóttir Arge – Hadsten Håndbold (Danmörk)

Línumenn

  • Pernille Brandenborg – CSM Búkarest (Rúmenía)
  • Vár Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)
  • Agatha Kjærbæk Djurhuus – KA/Þór (Ísland)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top