Það styttist og styttist í komandi tímabil í Olís-deildum karla og kvenna. Olís-deild karla hefst fimmtudaginn 3.september á meðan Olís-deild kvenna hefst laugardaginn 5.september. Handkastið heldur áfram að hita upp fyrir Olís-deildirnar og hefur sent sömu tíu spurningarnar á alla þjálfara deildarinnar í karla og kvenna flokki. Nú er komið að því að sjá hvað þjálfari KA í Olís-deild karla Andri Snær Stefánsson hefur að segja. Ertu ánægð/ur með hvernig undirbúningstímabilið hefur gengið? Ég er ánægður með undirbúninginn okkar. Það komu nokkrir úr meiðslum inn í undirbúningstímabilið og þurfti að fara rétt með þá. Annars erum við búnir að æfa virkilega vel. Við höfum notað æfingaleikina í að koma okkur í takt og erum spenntir að byrja Íslandsmótið. Hverjar voru áherslur liðsins á undirbúningstímabilinu? Frekar hefðbundnar áherslur, bolti á tempói í bland við styrktar æfingar. Við spiluðum nokkra æfingaleiki til að koma okkur í leikform en annars erum við búnir að setja upp góðar æfinga vikur og fara yfir okkar hluti. Staðan er mjög fín á liðinu. Nokkrir leikmenn voru að koma úr meiðslum í byrjun undirbúningstímabilsins en þeir eru flestir komnir í flott stand. Daði fyrirliði er enn meiddur eftir hásinaslit en það styttist í hann. Giorgi fór í aðgerð í síðustu viku en við reiknum með honum klárum eftir áramót. Úlfar og Eyþór eru á meiðslalistanum, minniháttar hjá Eyþóri en Úlfar er á leið í aðgerð og verður klár eftir áramót. Aðrir eru bara flottir. Hvernig metur þú þær mannabreytingar sem hafa orðið á liðinu í sumar? Eins og gengur þá eru alltaf einhverjar breytingar. Einar Rafn fór í FH en hann var líka með mér í þjálfarateyminu, hann var lykilmaður hjá okkur. Jói Sævars fór í Þór, Ari Valur flutti suður auk þess að Gummi Imsland og Leó eru hættir. Við lánuðum Aron Daða í ÍR, gott þroska tækifæri fyrir hann að prófa að fara suður og fá leikreynslu. Við fengum Dag Árna heim sem er auðvitað frábært enda þekkjum við hann vel og hann okkur, smellpassar í liðið okkar. Að auki fengum við Andra Frey lánaðan frá UMFA og hann hjálpar okkur klárlega. Heimir kemur í þjálfarateymið sem er klassi enda vinnum við allt vel saman. Auðvitað væri maður til í að halda sem flestum en nýir menn koma með ferska vídd og við erum að þróa KA liðið okkar. Hverjar telur þú vera helstu áskoranir þínar og liðsins í vetur? Við viljum auðvitað ná stjórn á leik okkar og þeim stöðugleika sem þarf. Olís deildin er krefjandi deild og allir leikir eru erfiðir, við sjáum reglulega óvænt úrslit og mikið af ungum strákum sem vilja sanna sig. Við þurfum að einbeita okkur að einum leik í einu og það er hlutverk liðsheildarinnar að stilla okkur rétt af. Hverjar eru væntingar þínar til tímabilsins? Ég hlakka fyrst og fremst til að byrja mótið, mér finnst við vera með spennandi lið sem getur gert öfluga hluti. Hverju ert þú spennt/astur fyrir tímabilinu? Einfaldlega fyrsta leik gegn HK, ég er bara þar. Það eru KA menn að gera góða hluti í mörgum liðum í deildinni, ég myndi helst vilja fá þá alla í gula búninginn á ný. En ég segi Árni Bragi Eyjólfsson þar sem hann var óstöðvandi í KA treyjunni. Hef oft lent í að minn leikmaður þurfi að hvíla í þrjár sóknir þegar hann hefur fengið smá hnjask en það er í raun ekkert að, væri til í að endurskoða þetta dæmi. Hvaða lið telur þú að verði deildarmeistari í vetur? Mér finnst Valur vera líklegir.
Hvernig er staðan á leikmannahópnum rétt fyrir mót?
Ef þú mættir velja þér einn leikmann úr öðru liði í deildinni til að fá í þitt lið - Hver væri það og afhverju?
Ef þú mættir breyta einni reglu í handboltanum - Hver yrði breytingin?

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.