Svabbi Kóngur yfirmaður handboltamála hjá KA
KA

Svavar Ingi Sigmundsson hefur tekið við nýju og stærra hlutverki hjá handknattleiksdeild KA. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem yfirþjálfari deildarinnar en tekur nú einnig við starfi yfirmanns handboltamála hjá félaginu.

Svavar Ingi, sem flestir þekkja einfaldlega sem Svabba, hefur á síðustu tveimur árum verið einn af lykilmönnum í uppbyggingu handknattleiksins hjá KA. Hann hefur komið inn með ferska strauma í starfið og verður nú með enn meiri ábyrgð á þeirri vegferð sem félagið hefur verið á undanfarin ár.

KA hefur lagt mikla áherslu á uppbyggingu handboltans og er markmiðið að halda áfram að taka skref fram á við, bæði í yngri flokkum og hjá meistaraflokkum. Með nýju hlutverki Svavars verður hann leiðandi afl í þeim verkefnum.

Svavar þekkir KA-liðið vel enda lék hann sjálfur með meistaraflokki félagsins á sínum yngri árum.

Hann kom inn í meistaraflokk KA árið 2017 og þurfti ekki langan tíma til að öðlast goðsagnakenndan status hjá stuðningsmönnum félagsins. Í sínum fyrsta leik eftir að Akureyri Handboltafélagi var slitið upp tímabilið 2017-2018 kom Svavar við sögu á dramatískan hátt. Hann varði vítakast á lokasekúndunum þegar staðan var jöfn og í kjölfarið skoraði Dagur Gautason sigurmark KA.

Viðurnefnið „Svabbi kóngur“ varð til í kjölfarið og hefur fylgt honum síðan. Svavar lék alls í fjögur ár með meistaraflokki KA áður en hann hélt suður árið 2021 til náms. Þar gekk hann til liðs við FH og lék með liðinu.

Samhliða leikmannsferlinum hjá FH starfaði Svavar einnig sem yngriflokkaþjálfari og markmannsþjálfari, bæði hjá yngri flokkum og meistaraflokki kvenna. Svavar sneri aftur heim til KA fyrir tveimur árum og tók þá við starfi yfirþjálfara handknattleiksdeildarinnar. Mikil ánægja hefur verið með störf hans og nú hefur félagið ákveðið að færa honum enn stærra hlutverk.

Með stöðuhækkuninni fær Svavar ábyrgð á enn stærri hluta handknattleiksstarfs KA og verður í lykilhlutverki við áframhaldandi uppbyggingu deildarinnar. KA hefur miklar væntingar til Svavars í nýja starfinu og ljóst að Svabbi kóngur er hvergi nærri hættur að láta til sín taka í KA.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top