Dagur Árni stórkostlegur í endurkomunni
Egill Bjarni Friðjónsson

Dagur Árni Heimisson var stórkostlegur í liði KA í endurkomu sinni í KA-búninginn er liðið vann sannfærandi, níu marka sigur á HK í 1.umferð Olís-deildarinnar en leikurinn fór fram í Kórnum.

Dagur Árni skoraði tólf mörk í leiknum, þar af fimm af vítalínunni en Dagur Árni lék með Val á síðustu leiktíð en meiðsli settu strik í reikninginn.

KA hóf leikinn betur og komst í 4-1 en það var mesti munurinn á liðunum í fyrri hálfleik en KA hafði eins marks forystu í hálfleik 14-13. Í seinni hálfleik voru KA menn hinsvegar alltaf skrefinu á undan og fóru hægt og bítandi framúr HK-ingum.

KA voru með þægilegt forskot út allan leikinn og unnu að lokum níu marka sigur 37-28.

Eins og fyrr segir var Dagur Árni markahæstur með tólf mörk en Jens Bragi Bergþórsson skoraði sex mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson fjögur.

Hjá HK var Andri Þór Helgason markahæstur með sjö mörk og Aron Dagur Pálsson skoraði fjögur en hann fór meiddur af velli undir lok leiks.

Markvarslan var lítil sem engin hjá HK-ingum en Brynjar Vignir Sigurjónsson er skráður með fjóra varða bolta. Ágúst Elí Björgvinsson var hinsvegar með 12 varin skot og Bruno Bernat tvö.

Frekari tölfræði og þróun leiksins er hægt að sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top