Sæþór Atla með 16 mörk í stórsigri Gróttu
Eyjólfur Garðarsson

Í kvöld mættust Grótta og Víðir í Grill 66 deild karla á Seltjarnarnesi.

Leikurinn var mjög jafn fyrst um sinn og eftir 12 mínútna leik var staðan 8-8.

Þá vöknuðu Gróttu menn loksins til lífsins og voru frábærir það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Ótrúlegur viðsnúningur varð og var staðan 23-13 í hálfleik.

Eftir korters leik í seinni hálfleik var staðan skyndilega orðin 31-17 og Víðis menn sprungnir á limminu. Lokatölur urðu 43-22. Frábær byrjun á mótinu hjá heimamönnum í Gróttu.

Sæþór Atlason bauð upp á skrautsýningu og setti hvorki meira né minna en 16 mörk. Hannes Pétur Hauksson varði 13 skot.

Hjá Víði var Szymon Kowal markahæstur með 7 mörk og Jan Widera varði 11 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top