Í kvöld mættust FH og Grótta 2 í opnunarleik Grill 66 deildar kvenna en leikið var í Kaplakrika. Miklir yfirburðir voru strax í leiknum frá byrjun. FH stelpur voru komnar í 7-2 eftir 12 mínútna leik og litu aldrei um öxl eftir það. Í hálfleik var staðan 15-5. Eftir korters leik var munurinn orðinn 14 mörk. Lokatölur urðu svo 34-17 fyrir FH. Flott byrjun hjá FH og það er ljóst að þær eru til alls líklegar í Grill 66 deildinni í vetur. Sylvía Blöndal var markahæst með 10 mörk hjá FH. Szonja Szöke varði 16 skot. Hjá Grótta 2 var Edda Sigurðardóttir með 7 mörk. Soffía Helen varði 10 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.