Stjörnum prýtt lið HØJ Elite varð fyrir sannkölluðu áfalli í dönsku B-deildinni í gær þegar liðið tapaði afar óvænt 37-34 gegn Rækker Mølle á útivelli. Danskir fjölmiðlar gera mikið úr úrslitunum. HBOLD gengur svo langt að kalla þau ein óvæntustu úrslit síðari tíma í dönskum handbolta enda hefur HØJ sett saman lið sem á pappír sem ætti vart að eiga heima í næstefstu deild. Koma þessi úrslit aðeins degi eftir tap Álaborgar gegn Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni sem vöktu mikla athygli. Í leikmannahópi HØJ eru meðal annars stórstjörnurnar Jannick Green, Hampus Wanne og Thomas Solstad, auk þess sem danski landsliðsmaðurinn Lasse Andersson gekk til liðs við félagið í sumar. Lasse Andersson hefur þó glímt við hnémeiðsli og missti af leiknum í gær. Lengst af leit raunar út fyrir að HØJ myndi vinna leikinn eins og búist hafði verið við. Gestirnir komust mest fimm mörkum yfir í fyrri hálfleik og leiddu 18-16 þegar gengið var til búningsherbergja. Rækker Mølle neitaði hins vegar að gefast upp og sneri leiknum algjörlega við eftir hlé. Heimamenn unnu síðari hálfleikinn 21-16 og fögnuðu að lokum ótrúlegum 37-34 sigri fyrir framan 510 áhorfendur. Magnus Kronborg fór fyrir Rækker Mølle og skoraði ellefu mörk en Mathias Troelsen bætti við sjö. Thomas Solstadvar markahæstur HØJ með tíu mörk en Simen Schønningsen skoraði sex. Úrslitin hafa vakið gríðarlega athygli í Danmörku. Bent Nyegaard, handboltasérfræðingur TV 2 Sport, setti tapið í algjöran „sensationsklasse“ og viðurkenndi að fyrir leik hefði hann talið útilokað að Rækker Mølle gæti unnið HØJ. „Hefðir þú spurt mig fyrir leik hefði ég sagt að þetta gæti ekki gerst. Vá,“ sagði Nyegaard í viðbrögðum sínum við TV 2 Sport. HØJ hafði byrjað tímabilið með öruggum 32-22 sigri gegn Aarhus og því kom tapið í gær enn meira á óvart. HØJ ætlar sér ekkert annað en sæti í dönsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en kvöldið í Rækker Mølle sýndi að þrátt fyrir allar stórstjörnurnar verður leiðin þangað ekki endilega greið. Stefan Madsen þjálfari PSG tekur við liðinu eftir tímabilið og gerir sennilega ekki ráð fyrir neinu öðru en að hann stýri liðinu í dönsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.