
HK 2 og Selfoss 2 mættust í dag í Kórnum í Grill 66 deild karla. HK-ingar voru betri fyrstu 10 mínúturnar en síðan tóku Selfyssingar við sér. Voru þeir mun betri það sem eftir lifði hálfleiks og fóru inn til búningsherbergja með 5 marka forskot. 14-19 voru hálfleikstölur. Eftir 10 mínútna leik í seinni hálfleik náðu HK-ingar að jafna leikinn í 20-20. Seinustu 20 mínúturnar voru gestirnir frá Selfossi hinsvegar betri aðilinn og náðu mest að komast 4 mörkum yfir í 21-25. Fór það svo að Selfyssingar sigruðu naumlega 29-30 og keyra með stigin 2 yfir Hellisheiðina. Hjá Selfossi var Aron Leo Guðmundsson markahæstur með 8 mörk. Ísak Kristinn Jónsson varði 11 skot. Mikael Máni Weisshappel var markahæstur hjá HK með 9 mörk. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 7 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.