ÍR-ingar með 12 marka sigur á Ísafirði
Eyjólfur Garðarsson

Í dag mættust Hörður og ÍR í Grill 66 deild karla í íþróttahúsinu á Torfnesi.

Þónokkurt jafnræði var með liðunum næstum allan fyrri hálfleikinn. En ÍR-ingar alltaf einu skrefi á undan.

Staðan í hálfleik var 12-16 fyrir gestina úr Breiðholti.

Í seinni hálfleik tóku ÍR-ingar öll völd á leiknum og juku muninn jafnt og þétt. Sigurinn var aldrei í hættu og urðu lokatölur 22-34 fyrir ÍR-inga.

Hjá ÍR var Örn Kolur Kjartansson markahæstur með 8 mörk. Alexander Ásgrímsson varði 11 skot.

Hjá Herði var Jose Neto markahæstur með 5 mörk. Hermann Alexander og Lazar Minic vörðu samtals 12 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top