Fram vann Þór í Úlfarsárdalnum
Egill Bjarni Friðjónsson

Fram og Þór mættust í fyrstu umferð Olís deildar karla í Úlfarsárdalnum í leik sem var að klárast. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins en þá kveiktu heimamenn á sér og var staðan í hálfleik 17-14 fyrir Fram. Fram gaf ekki eftir í síðari hálfleiknum og landaði fyrsta sigri tímabilsins með fjórum mörkum 38-34.

Atkvæðamestur í liði Fram var Haukur Ingi Hauksson með sjö mörk. Ívar Logi Styrmisson og Max Emil Stenlund skoruðu sex mörk og aðrir minna.

Þórður Tandri Ágústsson var atkvæðamestur í liði Þórs með átta mörk. Hafþór Már Vignisson skoraði sjö mörk. Einn af nýju dönunum sem Þórsarar fengu, Bertram Simonsen skoraði sex mörk.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top