Fram hafði betur gegn nýliðunum
Kristinn Steinn Traustason

Fram hóf tímabilið í Olís-deild kvenna á sex marka sigri gegn nýliðum Gróttu í Úlfarsárdal í kvöld. Lokatölur urðu 30-24 eftir að Fram hafði verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13-11. HSÍ staðfestir að fyrsta umferð Olís-deildar kvenna fór fram í dag. 

Leikurinn var jafn framan af og Grótta komst meðal annars yfir í stöðunni 2-3. Fram náði smám saman undirtökunum en nýliðarnir héldu vel í heimakonur og staðan var 13-11 þegar gengið var til búningsherbergja.

Grótta jafnaði metin í 16-16 í síðari hálfleik en þá kom sterkur kafli hjá Fram. Heimakonur skoruðu sex mörk í röð, breyttu stöðunni í 22-16 og náðu þar forskoti sem Grótta náði ekki að vinna upp. Mest varð forskot Fram átta mörk áður en lokatölur urðu 30-24.

Hulda Dagsdóttir var markahæst hjá Fram með tíu mörk og Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir skoraði sjö. Hjá Gróttu fór Katrín S. Scheving Thorsteinsson mikinn og skoraði 13 af 24 mörkum liðsins. Eva Björk Davíðsdóttir bætti við fimm mörkum.

Nýliðarnir voru ekki með sitt sterkasta lið. Júlíus Þórir Stefánsson, þjálfari Gróttu, tók út leikbann og þá var Ída Margrét Stefánsdóttir, markahæsti leikmaður Gróttu á síðustu leiktíð, fjarverandi vegna meiðsla.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top