Olís deild kvenna byrjaði formlega í dag þegar ÍBV og Þór/KA mættust í Vestmannaeyjum í leik sem kláraðist fyrr í dag. Heimastúlkur voru ofan á í fyrri hálfleiknum og var staðan í hálfleik 19-15. ÍBV gaf ekkert eftir í síðari hálfleiknum og landaði að lokum fjögurra marka sigri, 32-38 Landsliðskonan Sandra Erlingsdóttir var markahæst hjá ÍBV í leiknum með átta mörk úr tólf skotum. Alexandra Ósk Viktorsdóttir skoraði sjö mörk í dag og aðrar minna. Joan Rúnadóttir Johannesen var markahæst hjá gestunum með 8 mörk. Agatha Kjærbæk Djurhuus, Lenka Ratvajská og Lydía Gunnþórsdóttir skoruðu fjögur mörk hver og aðrar minna. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.