Selfoss mætti á Hlíðarenda og vann óvænt
Sigurður Ástgeirsson

Valur og Selfoss mættust í fyrstu umferð Olís deildar kvenna á Hlíðarenda í dag. Selfoss var með yfirhöndina nánast allan leikinn og var liðið yfir 7-14 í hálfleik. Selfoss náði að halda í forskotið og lönduðu gestirnir nokkuð óvæntum sigri 21-25

Atkvæðamestar í liði Vals voru Ásdís Þóra Ágústsdóttir og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir skoruðu báðar fjögur mörk og aðrar minna.

Atkvæðamest í liði gestanna var Hulda Hrönn Bragadóttir en hún skoraði sex mörk. Harpa Valey Gylfadóttir skoraði fjögur og aðrar minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top