Rakel Dórothea með 10 mörk í sigri Aftureldingar

HK 2 og Afturelding mættust í dag í Kórnum í Grill 66 deild kvenna.

Afturelding var alltaf einu skrefi á undan í fyrri hálfleik og voru sterkari aðilinn. Þær voru lengi vel 3-4 mörkum yfir í fyrri hálfleik en hálfleikstölur voru 10-16 fyrir UMFA.

Í seinni hálfleik hélt Afturelding vel í forskotið og hleyptu HK 2 aldrei neitt nálægt sér. Var munurinn yfirleitt 5-7 mörk og urðu lokatölur 18-26 fyrir Aftureldingu.

Sebastian Alexandersson byrjar því á sigri í sínum fyrsta mótsleik með Aftureldingu.

Hjá Aftureldingu var Rakel Dóróthea Ágústsdóttir markahæst með 10 mörk. Ingibjörg Gróa varði 11 skot.

Hjá HK 2 var Auður Guðmundsdóttir markahæst með 4 mörk. Freydís Ragna varði 12 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top