Frábær byrjun á mótinu hjá Fjölnisstelpum
Emma Elísa Jónsdóttir

Fjölnir og Valur 2 mættust í dag í Egilshöll í Grill 66 deild kvenna.

Leikurinn var mjög kaflaskiptur. Vals stelpur voru betri aðilinn í fyrri hálfleik og náðu mest 4 marka forskoti.

Hálfleikstölur voru 13-14 fyrir Val. Fjölnis stelpur mættu síðan gríðarlega ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og eftir korters leik var staðan skyndilega orðin 22-17 fyrir heimakonur í Fjölni.

Vals stelpur náðu ekki að brúa bilið og Fjölnis stelpur sigruðu leikinn að lokum 31-24. Frábær byrjun á mótinu hjá heimakonum í Fjölni.

Hjá Fjölni var Sara Pedersen markahæst með 8 mörk. Markvarslan hjá þeim Söru Reykdal og Brynju skilaði 6 boltum vörðum.

Hjá Val voru Anna Margrét Alfreðsdóttir og Eyrún Anna Arnarsdóttir markahæstar með 5 mörk. Iðunn Vala varði 6 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top