Fram 2 og Víkingur mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal. Fram stelpur voru heilt yfir betri aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu leikinn lengst af. Víkings stelpur voru þó ekki langt frá og voru hálfleikstölur 14-12 fyrir Fram. Í seinni hálfleik var Fram áfram betri aðilinn en náðu aldrei að slíta Víkings stelpur almennilega frá sér. Þegar 4 mínútur var eftir af leiknum náðu Víkings stelpur að jafna metin og sigldu svo fram úr í blálok leiksins og sigruðu leikinn 26-27. Frábær byrjun hjá Víkings stelpum að kreista fram óvæntan sigur eftir mikla rússibanareið hjá félaginu á síðustu vikum. Hjá Víking voru Anita Muratovic og Ólöf Ásta Arnþórsdóttir markahæstar með 7 mörk. Klaudia og Þórdís Idda vörðu samtals 9 skot. Hjá Fram 2 voru Ebba Gurrý og Sara Rún markahæstar með 6 mörk. Arna Sif varði 9 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.