Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í norsku úrvalsdeildinni í dag og þau unnu öll en þetta var jafnframt fyrsti sigur allra þriggja. Nýliðar Viking unnu sex marka sigur á Sandnes á heimavelli, 35-29 þar sem Tryggvi Garðar Jónsson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir heimamenn. Góður sigur hjá Viking sem tapaði fyrsta leiknum fyrir Elverum stórt. Sigurjón Guðmundsson átti frábæran leik í marki Sandefjord þegar liðið spilaði sinn fyrsta leik á heimavelli gegn Kristiansand. Heimamenn unnu með minnsta mun, 31-30 en Sigurjón varði átta skot af þeim tuttugu og tveimur sem hann fékk á sig eða 36% markvarsla. Flott byrjun hjá Sigurjóni sem skipti yfir til Sandefjord í sumar. Að lokum unnu Drammen góðan útsigur á Fjellhammer, 26-29 en Ísak Steinsson fékk tækifæri í marki Drammen en átti erfitt uppdráttar og varði aðeins eitt skot af þeim fjórtán sem hann fékk á sig eða 7% markvarsla. Úrslit dagsins: Viking 35-29 Sandnes Sandefjord 31-30 Kristiansand Fjellhammer 26-29 Drammen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.