Afturelding kveikti aftur á sér og tryggði sigurinn
Egill Bjarni Friðjónsson

Afturelding hóf tímabilið í Olís-deild karla á sex marka sigri gegn nýliðum Víkings, 35-29, í Mosfellsbæ í dag. Leikurinn var með óvenjulegasta móti en fyrri hálfleikurinn fór fram á föstudag áður en rafmagnsleysi varð til þess að fresta þurfti þeim síðari fram til klukkan 13:00 í dag.

Afturelding byrjaði leikinn af miklum krafti á föstudaginn og skoraði fyrstu þrjú mörkin. Heimamenn juku forskotið jafnt og þétt, komust í 8-2 og leiddu mest með sex mörkum í fyrri hálfleik. Víkingar minnkuðu muninn í fimm mörk fyrir hlé, 17-12, en þá var leik frestað vegna rafmagnsleysis.

Liðin sneru aftur á völlinn í dag til að ljúka leiknum. Víkingar minnkuðu muninn í þrjú mörk, 20-17 og aftur í 21-18, en nær komust nýliðarnir ekki.

Afturelding náði aftur undirtökunum, jók forskotið í 29-21 og mest í níu mörk í stöðunni 33-24. Víkingar klóruðu lítillega í bakkann undir lokin en Afturelding vann að lokum öruggan sex marka sigur, 35-29.

Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur Aftureldingar með átta mörk. Danski leikmaðurinn Oscar Sven Leithoff Lykke skoraði sjö og Hákon Daði Styrmisson sex.

Sigurður Páll Matthíasson var markahæstur Víkings með átta mörk og Gunnar Hrafn Pálsson skoraði sex.

Þorgeir Bjarki Davíðsson leikmaður Víkings fékk að líta rauða spjaldið í seinni hálfleiknum í dag.

Þetta var fyrsti deildarleikur Aftureldingar undir stjórn Hrannars Guðmundssonar og Ingimundar Ingimundarsonar. Víkingar voru jafnframt að leika sinn fyrsta leik í Olís-deildinni eftir að hafa tryggt sér sæti meðal þeirra bestu á síðustu leiktíð.

Mörk Aftureldingar: Árni Bragi Eyjólfsson 8, Oscar Sven Leithoff Lykke 7, Hákon Daði Styrmisson 6, Hans Jörgen Ólafsson 4, Harri Halldórsson 3, Stefán Magni Hjartarson 3, Ævar Smári Gunnarsson 2, Daníel Bæring Grétarsson 1, Einar Baldvin Baldvinsson 1.

Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 9, Sigurjón Bragi Atlason 2.

Mörk Víkings: Sigurður Páll Matthíasson 8, Gunnar Hrafn Pálsson 6, Jón Karl Einarsson 4, Elvar Otri Hjálmarsson 2, Ísak Óli Eggertsson 2, Kristján Helgi Tómasson 2, Þorgeir Bjarki Davíðsson 2, Arnar Már Ásmundsson 1, Kristófer Snær Þorgeirsson 1, Stefán Scheving Þ. Guðmundsson 1.

Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 7, Daði Bergmann Gunnarsson 3.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top