Félagaskiptin stöðvuðu Lenu og Elísu
Kristinn Steinn Traustason

Athygli vakti að Lena Margrét Valdimarsdóttir var ekki í leikmannahópi Fram þegar liðið hóf tímabilið með 30-24 sigri á nýliðum Gróttu í 1. umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn.

Lena Margrét gekk til liðs við Fram í sumar eftir eins árs dvöl hjá sænska liðinu Skara. Þegar málið var skoðað betur kom í ljós að félagaskipti hennar frá Skara yfir í Fram höfðu ekki enn gengið í gegn og var hún því ekki lögleg með liðinu gegn Gróttu.

Fjarvera hennar kom þó ekki að sök og vann Fram leikinn með sex marka mun, 30-24. Ekkert varð hinsvegar úr endurkomu Lenu Margrétar.

Haraldur Þorvarðarson, þjálfari Fram, staðfesti í samtali við Handkastið að Lena Margrét yrði að öllum líkindum klár í slaginn þegar Fram heimsækir Stjörnuna í 2. umferðinni næstkomandi föstudag klukkan 18:00.

Svipað mál kom upp í Breiðholtinu þar sem markvörðurinn Elísa Helga Sigurðardóttir var ekki í leikmannahópi ÍR gegn Stjörnunni. Félagaskipti hennar yfir í ÍR höfðu heldur ekki gengið í gegn.

Það kom í ljós þegar starfsmaður ÍR ætlaði að velja leikmannahóp liðsins í HB-ritara, leikskýrslukerfi HSÍ, um klukkustund fyrir leik liðanna í 1. umferðinni. Elísa Helga var því ekki lögleg og þurfti að sitja hjá.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top