
Þorvaldur Örn Þorvaldsson og félagar í Wybrzeże Gdańsk unnu fjögurra marka útisigur á Stal Mielec, 28–24, í pólsku úrvalsdeildinni í kvöld. Stal Mielec byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 6–2 eftir ellefu mínútur. Wybrzeże Gdańsk, sem vann bronsverðlaun í deildinni á síðustu leiktíð, náði þó smám saman að minnka muninn og jafnaði metin í 13–13 rétt fyrir hálfleik. Jafnræði var áfram með liðunum í síðari hálfleik. Staðan var 18–18 eftir 40 mínútur og Stal Mielec komst yfir, 19–18, fimm mínútum síðar. Heimamenn voru enn marki yfir þegar níu mínútur voru eftir en þá tóku gestirnir öll völd. Wybrzeże Gdańsk sneri leiknum sér í vil með öflugum lokakafla og náði sex marka forskoti. Þorvaldur Örn skoraði síðasta mark liðsins þegar tvær mínútur voru eftir og breytti stöðunni í 28–22. Stal Mielec skoraði síðustu tvö mörkin og lokatölur urðu 28–24. Þorvaldur Örn skoraði eitt mark úr sínu eina skoti í leiknum. Mateusz Czapliński var markahæstur hjá Wybrzeże Gdańsk með sex mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.