Mikil óánægja ríkir hjá THW Kiel eftir 31-31 jafntefli liðsins gegn SG Flensburg-Handewitt í 117. Norðurslagnum. Kiel virtist hafa tryggt sér sigur á lokasekúndunum en mark Julian Köster var dæmt af eftir nokkurra mínútna myndbandsskoðun. Jafnvel leikmenn Flensburg viðurkenna að ákvörðunin hafi verið afar hörð. Dramatíkin var algjör á lokasekúndum leiksins. Julian Köster skoraði það sem virtist vera sigurmark Kiel, 32-31, og allt ætlaði um koll að keyra meðal stuðningsmanna liðsins. Dómararnir ákváðu hins vegar að skoða lokasóknina í myndbandssjá. Eftir nokkurra mínútna skoðun var markið dæmt af þar sem Domen Makuc, sem lagði upp mark Köster, var talinn hafa tekið of mörg skref fyrr í sókninni. Hendrik Pekeler, línumaður Kiel, dregur ekki í efa að Makuc hafi tekið of mörg skref. Hann skilur hins vegar ekki hvers vegna dómararnir ákváðu yfirhöfuð að skoða atvikið. „Frá mínum bæjardyrum séð sé ég ekkert sem ætti að gefa dómurunum ástæðu til að efast og fara þess vegna í myndbandssjána,“ sagði Pekeler. „Auðvitað er þessi regla til staðar, en hvað varð til þess að þeir ákváðu að nota hana?“ Pekeler vill fá nánari skýringu á ákvörðuninni. „Við erum sammála um að Domen tók þessi skref. En ég hefði áhuga á að vita hvers vegna dómararnir fóru í myndbandsskoðun og hvað það var sem þeir voru óvissir um.“ „Ég var mjög hissa á ákvörðuninni. Svo virðist sem þetta sé allt samkvæmt reglunum. Hvort þetta sé gott fyrir íþróttina er svo annað mál," sagði Viktor Szilagyi, framkvæmdastjóri Kiel. Szilagyi gagnrýndi sérstaklega að hægt væri að fara aftur um nokkur atvik í sömu sókn til að finna brot. „Það eru svo mörg svona atvik í einum leik. Að þurfa að fara tvö atvik aftur í tímann er auðvitað pirrandi. Þetta er einfaldlega sárt.“ Hann vonast til þess að Kiel fái útskýringu á því hvers vegna ákveðið var að skoða sóknina með þessum hætti. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Kiel fær mark dæmt af vegna skrefa eftir myndbandsskoðun. Í 30-30 jafntefli gegn ThSV Eisenach í apríl var Elias Ellefsen á Skipagøtu dæmdur skrefur eftir myndbandsskoðun, þótt upphaflega hafi verið verið að skoða hvort Peter Walz hjá Eisenach ætti að fá rautt spjald. Jafnteflið þýðir að Flensburg heldur efsta sætinu á undan Kiel. Bæði lið eru með 11 stig en Flensburg stendur betur að vígi vegna markatölu. Simon Pytlick, leikmaður Flensburg, hafði þó fullan skilning á viðbrögðum Kiel. „Þetta er virkilega hörð ákvörðun. Ég skil Kiel og ég skil stemninguna í höllinni. Ef þetta hefði verið öfugt hefði ég líklega verið reiður líka.“ Pytlick viðurkenndi að tæknimistök Makuc hefðu verið greinileg á myndbandinu en velti engu að síður fyrir sér hvort rétt væri að dæma markið af með þessum hætti. „Þú getur oft fundið skref í leik. Frá íþróttalegu sjónarmiði veit ég ekki hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun því svona gerist mjög oft í leik.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.