Mark Bult tekur við hollenska landsliðinu
Handbal NL

Mark Bult hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari hollenska karlalandsliðsins í handbolta. Bult tekur strax til starfa og fær það verkefni að halda áfram uppbyggingu liðsins með næstu ár í huga.

Hollenska handknattleikssambandið hefur staðfest að Mark Bult taki við stjórn karlalandsliðsins.

Bult þekkir vel til á alþjóðlega sviðinu, bæði sem fyrrum landsliðsmaður Hollands og sem þjálfari, og tekur hann strax við starfinu.

Framundan er áframhaldandi uppbygging hollenska landsliðsins þar sem meðal annars verður horft til undankeppni EM 2028 og framtíðar karlahandboltans í Hollandi.

Bult segist stoltur af því að fá tækifæri til að stýra landsliðinu en hann lék sjálfur stórt hlutverk með hollenska landsliðinu á sínum leikmannaferli.

„Landsliðið lék mikilvægt hlutverk á mínum eigin handboltaferli. Ég er stoltur af því að geta nú miðlað þekkingu minni og reynslu í þessu hlutverki,“ sagði Bult.

Hann er jafnframt spenntur fyrir þeim leikmannahópi sem Holland hefur úr að moða.

„Við erum með frábæra kynslóð leikmanna og ég hlakka til að taka stór skref með þeim.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top