37 ára markakóngur bankar á dyrnar hjá Alfreð
MARIJAN MURAT /AFP

Kai Häfner, hægri skytta Stuttgart, hefur byrjað tímabilið af krafti í þýsku Bundesligunni og gæti verið að vinna sig aftur inn í landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar fyrir heimsmeistaramótið á heimavelli í janúar.

Häfner, sem er 37 ára er markahæsti leikmaður þýsku Bundesligunnar með 55 mörk. Hann er talinn helsti keppinautur Franz Semper, leikmanns Leipzig, um sæti í hægri skyttunni við hlið Renars Uscins hjá Hannover-Burgdorf.

Mesta breiddin er í vinstra horninu þar sem Matthias Musche hefur byrjað tímabilið afar vel með Magdeburg. Þar keppir hann meðal annars við liðsfélaga sinn Lukas Mertens, Tim Freihöfer hjá Füchse Berlin og Kiel-leikmennina Vincent Büchner og Rune Dahmke.

Í hægra horninu er Timo Kastening, leikmaður Melsungen, hins vegar í kapphlaupi við tímann. Hann hefur ekki leikið á tímabilinu vegna meiðsla í hæl og það gæti opnað dyrnar fyrir Mathis Häseler hjá Gummersbach. Lukas Zerbe, leikmaður Kiel, er talinn öruggur með sæti.

Juri Knorr hjá Álaborg og Nils Lichtlein hjá Füchse Berlin eru taldir vera öruggir með sæti í þýska landsliðshópnum. Taki Alfreð þriðja leikstjórnandann með er talið að valið standi helst á milli Luca Witzke hjá Flensburg og Marian Michalczik hjá Hannover-Burgdorf.

Andreas Wolff leikmaður Kiel og David Späth leikmaður Rhein-Neckar Löwen eru taldir líklegastir til að vera valdir í stöðu markvarðar. Þeir hafa verið markvarðapar Alfreðs á síðustu stórmótum og miðað við það eru þeir líklegastir til að fara á HM. Lasse Ludwig hjá Füchse Berlin hefur einnig komið inn í landsliðið og er meðal þeirra sem veita þeim samkeppni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top