Haukar unnu stórsigur á svartfellska liðinu RK Levalea 2010 Nikšić, 42–24, í fyrri leik liðanna í 3. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta á Ásvöllum í kvöld. Jóhanna Sigurðardóttir, Sonja Sigsteinsdóttir og Rakel Guðmundsdóttirskoruðu samtals 28 mörk fyrir Hauka. Haukar tóku frumkvæðið strax í upphafi og komust í 5–1. Gestirnir minnkuðu muninn í fjögur mörk undir lok fyrri hálfleiks, 18–14, áður en Jóhanna skoraði síðasta mark hálfleiksins úr vítakasti og kom Haukum í 19–14. Haukar juku forskotið jafnt og þétt eftir hlé. Staðan var orðin 31–18 þegar tæpur stundarfjórðungur var eftir og Kristín Ása Egilsdóttir skoraði síðasta mark leiksins, 42–24, þegar þrjár sekúndur voru eftir. Jóhanna var markahæst með tíu mörk en Sonja og Rakel skoruðu níu hvor. Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir varði níu skot í marki Hauka og Sara Helgadóttir sex. Andrea Dragnić var markahæst gestanna með átta mörk. Seinni leikurinn fer einnig fram á Ásvöllum á morgun, mánudag, klukkan 18:00. Haukar – RK Levalea 2010 Nikšić 42–24 (19–14) Mörk Hauka Varin skot Hauka Mörk Levalea
Jóhanna Sigurðardóttir 10, Sonja Sigsteinsdóttir 9, Rakel Guðmundsdóttir 9, Aníta Eik Jónsdóttir 3, Alexandra Arnarsdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Berta Rut Harðardóttir 2, Hekla Björk Arnarsdóttir 1, Kristín Ása Egilsdóttir 1, Embla Steindórsdóttir 1, Sara Marie Odden 1.
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 9, Sara Helgadóttir 6.
Andrea Dragnić 8, Jelena Kuzman 5, Snežana Corovic 3, Sara Folic 3, Andjela Vujovic 3, Sanja Andrijašević 2.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.