Tvær úr KA/Þór í EM hópi Færeyja
Egill Bjarni Friðjónsson

Claus Leth Mogensen og Simon Olsen landsliðsþjálfarar færeyska kvennalandsliðsins hafa valið þá 16 leikmenn sem munu leika fyrir Færeyjar á Evrópumótinu í desember.

Joan Rúnadóttir Johannesen og Agatha Kjærbæk Djurhuus eru í hópnum en þær leika báðar með KA/Þór í Olís-deild kvenna.

Færeyingar undirbúa sig nú fyrir Evrópumótið sem hefst 5. desember og fer fram í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi.

Færeyska liðið kemur saman til æfinga í Þórshöfn mánudaginn 23. nóvember. Tveimur dögum síðar heldur liðið til Þrándheims í Noregi þar sem það mætir Noregi 26. nóvember og Danmörku 28. nóvember í tveimur undirbúningsleikjum. Að þeim loknum snýr liðið aftur til Færeyja áður en haldið verður til Póllands 3. desember.

Færeyjar eru í riðli með Úkraínu, Frakklandi og Póllandi og hefja leik gegn Úkraínu laugardaginn 5. desember.

EM-hópur Færeyja

Markverðir:

Rakul Wardum – Skanderborg Håndbold (Danmörk)
Annika Fríðheim Petersen – Gniezno (Pólland)

Útileikmenn:

Jana Mittún – Viborg HK (Danmörk)
Maria Pálsdóttir Nólsoy – København Håndbold (Danmörk)
Marita Mortensen – Nykøbing Falster (Danmörk)
Fríða Nolsøe Olsen – BK Ydun (Danmörk)
Ró Reginsdóttir – Neistin (Færeyjar)
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe – H71 (Færeyjar)
Lív Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)

Hornamenn:

Brynhild Pálsdóttir – BK Ydun (Danmörk)
Joan Rúnadóttir Johannesen – KA/Þór (Ísland)
Rannvá Olsen – Ejstrup/Hærvejen (Danmörk)
Christina Turiðardóttir Arge – Hadsten Håndbold (Danmörk)

Línumenn:

Pernille Brandenborg – CSM București (Rúmenía)
Vár Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København (Danmörk)
Agatha Kjærbæk Djurhuus – KA/Þór (Ísland)

Leikir Færeyja á EM

Laugardagur 5. desember kl. 19:30 – Færeyjar – Úkraína

Mánudagur 7. desember kl. 19:30 – Frakkland – Færeyjar

Miðvikudagur 9. desember kl. 17:00 – Færeyjar – Pólland

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top