Leikstaðir fyrir HM 2029 staðfestir
FEDERICO GAMBARINI/AFP

Þýska og franska handknattleikssambandið hafa tilkynnt hvaða sex borgir munu hýsa heimsmeistaramót karla árið 2029. Mótið verður haldið sameiginlega í Þýskalandi og Frakklandi en úrslitaleikurinn fer fram í frönsku höfuðborginni París.

Leikið verður í þremur borgum í hvoru landi. Í Þýskalandi verða leikirnir í Berlín, Hamborg og Köln en í Frakklandi verður leikið í Strassborg, Lyon og París.

Þýska landsliðið mun hefja keppni á mótinu í Uber Arena í Berlín en höllin tekur um 17.000 áhorfendur á handboltaleikjum. Þá verður einnig leikið í Barclays Arena í Hamborg auk Lanxess Arena í Köln, sem rúmar um 20.000 áhorfendur, en leikið verður í Köln í milliriðlum og einn leik í átta liða úrslitum.

Þjóðverjar stefna að því að leika milliriðilsleiki sína í Köln, komist þeir áfram úr riðlakeppninni.

Í Frakklandi verður leikið í Strassborg, Lyon og París en nánari upplýsingar um keppnishallirnar þar verða kynntar síðar. Úrslitahelgi mótsins verður í París þar sem heimsmeistararnir verða krýndir.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Þýskaland og Frakkland halda sameiginlega heimsmeistaramót karla. Þjóðverjar verða einnig gestgjafar heimsmeistaramótsins sem fram fer í janúar á næsta ári og því verða tvö af næstu heimsmeistaramótum karla haldin að hluta eða öllu leyti í Þýskalandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top